Fréttir...

Afi Tommi átti afmæli í gær og var móðir mín með mat fyrir þau og systur mínar, mér var ekki boðið...ekki nægur matur á boðstólnum sagði mamma, frekar fúll hehe nei nei...Hitti örugglega á þau á eftir, en í fýlukastinu í gær þá drakk ég afmælisgjöfina hans afa, ca 1líter af þessu fína viskí maðurLoL þannig að hann fær ekki neitt...

Sædís er búin að þræða allar parket-og flísabúðir á landinu núna í þessari viku, ætlum að reyna að gera gólfið klárt áður en við flytjum inn!  Datt samt í hug, þar sem Sædís hefur fengið sýnishorn frá öllum þessum stöðum hvort við getum bara ekki haldið áfram að sanka að okkur sýnishornum þangað til við erum búin að ná í það efni sem við þurfum, ok gólfið verður svolítið misjafnt en so what, getum sparað fúlgu á þessu W00t

Fékk að vita fyrir stuttu að ég á að fara (ásamt Magga H) til Bilbao á námskeið hjá Ulma.  Ulma er fyrirtæki sem sérhæfir sig í pökkunarvélum.  Verðum þarna í 10 daga, mjög spennandi...Hittir reyndar frekar illa á þar sem við fáum íbúðina afhenta núna um mánaðarmótin og ég akkurat úti...

jæja nóg í bili, þarf að fara að vinna...Joyful

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband